Leiðbeiningar

Gardínu - Svona mælir þú: Lengd

Við hjá Kara Rugs viljum gera þetta einfalt, mikilvægt er að vera ekki sparsamur á efni. Sama hvort eigi að hengja braut í loftið eða á vegginn á efnið að falla vel við gólfið. Hafa þarf í huga þegar mælt er fyrir gardínum að taka 3-4 mælingar eða jafnvel fleiri, sérstaklega ef glugginn eða flöturinn er stór. Gólf geta verið ójöfn og því mikilvægt að vita hvar stysti
punktur er svo gardínan verði ekki of löng.

Gardínubraut í loft

Mælið lofthæð, hafa þarf í huga að draga svo frá breidd brautar sem gardínan hangir á.

Ef gardína á að svífa yfir gólfinu þá er breidd brautar og 2-3 cm dreginn frá lofthæð. Misjafn er smekkur allra og fer það eftir hversu langt yfir gólfi þú vilt að gardínan svífi. Einnig má gera ráð fyrir því að efnið setjist aðeins með tímanum þegar það hengur. 

Ef Gardínan á að snerta gólfið þá er breidd brautar dregin frá lofthæð og bætt svo við einum cm við lofthæð.

Gardínubraut í vegg

Gardínubraut í vegg

Mælið hæð frá neðri kanti brautar og dragið frá 2 cm ef gardínan á að svífa rétt yfir gólfi.  

Ef gardínan á að snerta gólf þá þarf að mæla hæð frá neðri kanti brautar og bæta svo við einum sentimetra við.

Algengar spurningar um lengd á gardínum

Hvaða lengd á maður að hafa á gardínum?

Sama hvort eigi að hengja braut í loftið eða á vegginn er mikilvægt að efnið falli vel við gólfið en svífi ekki langt yfir því. Einnig er gott að hafa í huga að efni eru náttúruleg og dragast saman og gefa eftir eftir hitastigi utanhús og inni. Gott er að hafa í huga að hugsanlega þurfi að bæta við cm á lengd vilji maður að gardínan sé niður í gólf eða draga frá cm á lengd vilji maður að gardínan svífi yfir gólfinu. Þetta er að sjálfsögðu smekksatriði 

Ég vil að gardínurnar mínar falli rétt við gólfið (svífi yfir), hvernig á ég að mæla?

Ef þú vilt ekki að gardínan falli létt við gólfið heldur nemi rétt við eða fyrir ofan gólfið þá dregur þú fyrst breidd brautar frá lofthæð og svo extra 1 -3 cm frá stysta punkti þar sem þú mælir lengdina. 

Gardínur - Svona mælir þú: breidd

Mældu breiddina á því svæði sem þú vilt að gardínurnar þeki.

  • Gardínur fyrir glugga: Mældu breidd gluggans og bættu við um 20 cm hvoru megin svo gardínurnar nái út fyrir gluggann.
  • Gardínur frá vegg til vegg: Mældu alla breiddina á milli veggjanna.
  • Gardínur á gardínubraut: Ef þú ert þegar með braut skaltu mæla lengd hennar.

Dæmi: Ef glugginn er 160 cm á breidd og þú vilt að gardínurnar nái 20 cm út fyrir gluggann hvoru megin, slærðu inn 200 cm í breidd.

Athugið: Þú slærð aðeins inn þá breidd sem gardínurnar eiga að þekja. Við sjáum um að reikna út rétt efnismagn og rykkingu.

Algengar spurningar um breidd á gardínum?

Getur maður sett saman mismunandi breiddir við sama gluggan?

Já auðvitað!

Það er mjög eðlilegt að púsla saman breiddum til að láta gardínur passa saman og flæða rétt. Eða ef það er minni vegg partur öðru megin þá er það mun náttúrulegra að mixa saman breiddum.

Ég er með glugga sem er 300 en svæðið sem ég vil að gardínan þekur er 330. Hvaða stærð hentar? Það er alltaf gott að skoða hvort að það sé til dæmis svala hurð eða hurð út í garð. Gott er að skoða rýmið vel og hvernig þú gengur um það. Stundum er betra ef mikill umgangur er um svæðið að taka einn væng sem þú getur fært í burtu þegar umgangur er mikill eða verið er til dæmis að grilla. En sumir vilja að hægt sé að draga jafnt frá og þá er betra að taka tvo vængi. Hér væri möguleiki að taka til dæmis saman 2x vængi sem hver þekur 150cm eða 1x eða skipta þeim niður í ójafna þekju ef td svalahurð er á þessu svæði. Ef viðskiptavinir eru óviss þá er alltaf hægt að koma til okkar í Askalind 4 eða senda tölvupóst á kararugs@gmail.com og fá ráðgjöf.

Gardínur - Svona hengir þú upp

Hér eru okkar bestu tips um það hvernig er best að hengja upp gardínurnar.

Við viljum að það sé eins einfalt og þæginlegt þegar keyptar eru sérsaumaðar gardínur frá okkur. Við
höfum því gert ferlið eins auðvelt og hægt er og þegar gardínurnar koma til þín þá tekur þú þær
einfaldlega upp og hengir upp á gardínu brautina. Þú byrjar frá endanum á gardínubrautinni og setur fyrsta krókin inn í brautina og svo raðar þú þeim hver á eftir öðrum þar til öll gardínan er komin upp.
Til þess að gardínan sé sem fallegust er gott ráð að gufa gardínurnar og þá sérstaklega efst við
brautina þar sem að það geta komið brot í svegjurnar (wave borðan) þegar gardínan er brotin saman eftir saum og í
flutningi. Gufa svo niður frá braut að gólfi þar til gardínan er slétt og fín. Síðasta tips er svo að spreyja lín vatni „linne vatten“ á gardínurnar þínar sem gefur gardínunum góða og
nýþvegna lykt og tilfinningu.

Gott er að hafa í huga að það getur tekið upp undir tvær vikur fyrir gardínur að setjast alveg þegar þær hafa verið hengdar upp.