Sýningarrými Askalind 4 opið Þriðjudaga, miðvikudaga og fimmtudaga 12-17
Sýningarrými Askalind 4 opið Þriðjudaga, miðvikudaga og fimmtudaga 12-17
Okkar vinsælu mottur eru vélofnar, framleiddar í Tyrklandi fyrir Kara Rugs. Um er að ræða viscose mottur, blöndu af viscose og bómull, viscose og silki og bambus og Ull.
Motturnar koma í mörgum gerðum, litum og stærðum. Þær hafa reynst einstaklega vel og algjörlega slegið í gegn. Flestar okkar gólfmottur frá Tyrklandi er hægt að sérpanta í 240x340 og sumar í 300x400.
Handofnu motturnar eru heill heimur út af fyrir sig. Hver motta er einstök. Hún er ofin eftir aldagömlum hefðum og í mismunandi munstrum eftir héruðum. Vinsælustu motturnar eru vintage mottur. Um er að ræða 30 til 80 ára gamlar mottur sem hefur verið gefið nýtt líf. Þær eru skafnar og sótthreinsaðar, liturinn er dempaður og stundum yfirlitaður. Alltaf er til nokkuð úrval á lager af þessum sérstöku mottum. Einnig er hægt að sérpanta mottur eftir óskum kaupenda. Okkar maður í Tyrklandi leitar þá uppi þá mottu sem óskað er eftir. Handofnu motturnar eru ullarmottur sem endast mann fram af manni. Þær eru auðveldar í þrifum og allri umgengni. Sannkallaðir kjörgripir.
Classic Collection er sænskt merki stofnað árið 1996 og í dag sérhæfir merkið sig í handofnum mottum frá Indlandi. Fyrirtækið setur mikin metnað í handverkið og vinnur náið með verksmiðjum sínum til að skapa vörur sem endast. Einnig er merkið með fallegan textíl eins og púða, pullur og falleg teppi.
Classic Collection motta eru handofin í vefstólum, hver og ein, eftir ævagömlum hefðum á Indlandi. Engar vélar koma þar við sögu. Hver motta er einstök. Litlar og stórar mottur sem henta í hvaða herbergi sem er. Hægt er að sérpanta flestar mottur frá Classic Collection mjög stórar, 250x350 og 300x400.
Hver motta er einstök og smávægileg frávik á mynstri, lit og stærð geta komið fram. Þessi frávik eru það sem gerir motturnar frá Classic Collection persónulegar og einstakar. Hver motta framleidd fyrir Classic Collections skapar vinnu og hjálpar til við að halda lífi í gömlum hefðum. Motturnar eru vottaðar af Care & Fair.