160x235cm

Okkar vinsælu mottur eru vélofnar, framleiddar í Tyrklandi fyrir Kara Rugs. Um er að ræða viscose mottur,  blöndu af viscose og bómull, viscose og silki og  bambus og Ull. 

Motturnar koma í mörgum gerðum, litum og stærðum. Þær hafa reynst einstaklega vel og algjörlega slegið í gegn. Flestar okkar gólfmottur frá Tyrklandi er hægt að sérpanta í 240x340 og sumar í 300x400.

Handofnu motturnar eru heill heimur út af fyrir sig.  Hver motta er einstök. Hún er ofin eftir aldagömlum hefðum og í mismunandi munstrum eftir héruðum.   Vinsælustu motturnar eru vintage mottur.  Um er að ræða 30 til 80 ára gamlar mottur sem hefur verið gefið nýtt líf.  Þær eru skafnar og sótthreinsaðar, liturinn er dempaður og  stundum yfirlitaður.  Alltaf er til nokkuð úrval á lager af þessum sérstöku mottum. Einnig er hægt að sérpanta mottur eftir óskum kaupenda. Okkar maður í Tyrklandi leitar þá uppi þá mottu sem óskað er eftir.  Handofnu motturnar eru ullarmottur sem endast mann fram af manni. Þær eru auðveldar í þrifum og allri umgengni. Sannkallaðir kjörgripir.

Flokka og raða

  • : Uppselt
Baðmotta beige og hvít
  • : Uppselt
Ova taupe