Flow Black/Beige – Ullarteppi
Lýsing
Flow Black/Beige er mjúkt og vandað ullarteppi með áberandi bylgjulaga mynstri í svörtum og beige tónum. Andstæðir litirnir draga fram mynstrið og gefa teppinu sterkan svip. Ofin áferðin dregur fram náttúrulega eiginleika ullarinnar og ljósir kögur á styttri hliðunum fullkomna útlitið.
Teppið er framleitt úr 100% nýsjálenskri ull sem er bæði hlý, mjúk og endingargóð. Flow hentar vel í sófann, yfir hægindastól eða við fótagafl rúmsins.
Efni: 100% nýsjálensk ull
Stærð: 130×180 cm
Litur: Black/Beige
Framleiðsla: Litháen
Vottun: OEKO-TEX® STANDARD 100
Umhirða: Mælt er með að viðra teppið reglulega. Blettir eru hreinsaðir varlega með köldu eða volgu vatni og mildu ullarþvottaefni. Forðist þvott í þvottavél og þurrkara. Má fara í þurrhreinsun.