Tilbúin gardína í pakka í litnum Santorini
Lýsing
Þunn, hvít gardína sem hleypir dagsbirtunni inn og gefur rýminu bjarta og létta ásýnd. Efnið fellur fallega og hentar vel fyrir þá sem vilja hafa ljósar gardínur án þess að loka fyrir náttúrulega birtu.
Gardínurnar eru úr sama efni og ein af okkar vinsælu sérsaumuðu gardínum, en koma tilbúnar í tveimur breiddum og staðlaðri lengd. Þær eru með upphengisborða sem gerir þér kleift að stilla rykkinguna eftir þínum óskum.
Tilvalin lausn fyrir þá sem vilja fá gardínur strax, án þess að bíða eftir sér-saumi.
Stærðir
200 × 280 cm
-
Efnis Breidd: 200 cm
-
Ráðlögð þekjubreidd: um 100 cm
280 × 280 cm
-
Efnis Breidd: 280 cm
-
Ráðlögð þekjubreidd: um 140 cm
Upplýsingar
-
Litur: Santorini – hvítur
-
Lengd: 280 cm
-
Rykking: Stillanleg, ráðlagt að miða við tvöfalda efnisbreidd
-
Upphengi: Upphengisborði
-
Afhending: Tilbúnar til afhendingar
Gott að vita
Verðið miðast við einn gardínuvæng. Fyrir glugga þar sem óskað er eftir gardínum beggja vegna þarf yfirleitt tvo vængi.
Þekjubreiddin miðast við um tvöfalda rykkingu og getur verið breytileg eftir því hversu þéttar þú vilt hafa gardínurnar.
Gardínurnar eru 280 cm á lengd og hægt er að stytta þær eftir þörfum.