Umhirða

Mottu Umhirða
  • Kara Rugs
  • 0
Mottu Umhirða
UMHIRÐA Til að mottan endist sem best er mikilvægt að hirða vel um hana og á réttan hátt. Vel hirt motta endist og er fallegri lengur. Við höfum skipt umhirðunni niður eftir tegundum og mælum við með að viðskiptavinir kynni sér vel hvernig best er að hirða um þá mottu sem þeir velja.   VÉLAOFNAR MOTTUR Viscose Ryksuga reglulega, með bursta á lægstu stillingu. Best er að þerra óhreinindi með eldhúspappír áður en bletturinn er meðhöndlaður á annan hátt. Þvo blettinn með mildri sápu og mjúkum litlausum klút, strjúka varlega í þá átt sem vefnaðurinn liggur. Prófa sig svo áfram og vinna sig rólega í gegnum blettinn. Hægt er að nota blettasprey ef um er að ræða erfiða bletti en forðast að nota bleikiefni. Mælt er með hreinsun af fagaðila.  Bambus og Polyester- Bambus og acril Ryksuga reglulega með bursta á lægstu stillingu. Blettahreinsa með mildri sápu og mjúkum litlausum klút. Gott er að snúa mottunni af og til svo ekki myndist djúp för í mottunni eftir húsgögn. Mælt er með hreinsun fagaðila. TYRKNESKAR VINTAGE MOTTUR Ryksuga reglulega með bursta á lægstu stillingu. Best er að þerra óhreinindi með eldhúspappír áður en bletturinn er meðhöndlaður á annan hátt. Þvo blettinn með mildri sápu og mjúkum klút. Mælt er með hreinsun fagaðila. CLASSIC COLLECTION Classic Collection mottur eru handofnar í vefstólum, hver og ein, eftir ævagömlum hefðum á Indlandi. Engar vélar koma þar við sögu. Hver motta er einstök.   Með tímanum geta stuttir lausir þræðir komið upp úr mottunni sem auðvelt er að klippa eða einfaldlega nota nál og stinga honum aftur niður á bakhliðina. Litbrigði geta líka verið á milli motta þar sem litirnir eru blandaðir í höndum. Þessi breytileiki á lit er eðlilegur, en samt sem áður er allt gert sem hægt er til að gera hann sem minnstan. Stærð mottanna getur verið breytileg um 4% frá uppgefinni stærð. Þetta er eðlilegt þar sem mottan eru handgerð.  Hver motta getur verið með smávægileg frávik á mynstri, lit og stærð þar sem hver motta er handgerð. Þessi frávik eru það sem gerir mottur frá Classic Collection persónulegar og einstakar. Skapar hver motta vinnu og hjálpar til við að halda lífi í gömlum hefðum. Motturnar eru vottaðar af Care & Fair. Nánari umhirða á hverri mottu fyrir sig má finna í lýsingu á hverri mottu og mælum við með því að viðskiptavinir kynni sér það vel.  

Gardínu - Svona mælir þú: Lengd

Við hjá Kara Rugs viljum gera þetta einfalt, mikilvægt er að vera ekki sparsamur á efni. Sama hvort eigi að hengja braut í loftið eða á vegginn á efnið að falla vel við gólfið. Hafa þarf í huga þegar mælt er fyrir gardínum að taka 3-4 mælingar eða jafnvel fleiri, sérstaklega ef glugginn eða flöturinn er stór. Gólf geta verið ójöfn og því mikilvægt að vita hvar stysti
punktur er svo gardínan verði ekki of löng.

Gardínubraut í loft

Mælið lofthæð, hafa þarf í huga að draga svo frá breidd brautar sem gardínan hangir á.

Ef gardína á að svífa yfir gólfinu þá er breidd brautar og 1,5-2 cm dreginn frá lofthæð. Misjafn er smekkur allra og fer það eftir hversu langt yfir gólfi þú vilt að gardínan svífi. Einnig má gera ráð fyrir því að efnið setjist aðeins með tímanum þegar það hengur.

Ef Gardínan á að snerta gólfið þá er breidd brautar dregin frá lofthæð og bætt svo við einum cm við lofthæð.

Gardínubraut í vegg

Gardínubraut í vegg

Mælið hæð frá neðri kanti brautar og dragið frá 1,5 cm ef gardínan á að svífa rétt yfir gólfi.

Ef gardínan á að snerta gólf þá þarf að mæla hæð frá neðri kanti brautar og bæta svo við einum sentimetra við.

Algengar spurningar um lengd á gardínum

Hvaða lengd á maður að hafa á gardínum?

Sama hvort eigi að hengja braut í loftið eða á vegginn er mikilvægt að efnið falli vel við gólfið en svífi ekki langt yfir því. Einnig er gott að hafa í huga að efni eru náttúruleg og dragast saman og gefa eftir eftir hitastigi utanhús og inni. Gott er að hafa í huga að hugsanlega þurfi að bæta við cm á lengd vilji maður að gardínan sé niður í gólf eða draga frá cm á lengd vilji maður að gardínan svífi yfir gólfinu. Þetta er að sjálfsögðu smekksatriði

Ég vil að gardínurnar mínar falli rétt við gólfið (svífi yfir), hvernig á ég að mæla?

Ef þú vilt ekki að gardínan falli létt við gólfið heldur nemi rétt við eða fyrir ofan gólfið þá dregur þú fyrst breidd brautar frá lofthæð og svo extra 1 cm frá stysta punkti þar sem þú mælir lengdina.

Gardínur - Svona mælir þú: breidd

Við hjá Kara Rugs hugsum gardínur þannig að við viljum gera þetta einfalt, fyrir okkur þýðir það staðlaðar breiddir og vera ekki sparsamur á efnið svo það myndist fallegar sveigjur(wave) eða að efnið falli vel við gólfið. Gardínurnar eru sérsaumaðar eftir þínum málum á lengdina og hægt er að velja á milli fjögurra staðlaða breidda.

Breidd 150 cm efnið er 150 cm a breidd og þekur mest útdregið 50 cm en dregið til hliðar þekur það um það bil 25 cm.

Breidd 300 cm efnið eru 300 cm á breidd en útdregið þekur það mest 100 cm og dregið til hliðar þekur það um það bil 45-50 cm.

Breidd 500 cm efnið er 500 cm á breidd en útdregið þekur það mest 165 cm en dregið til hliðar þekur það um það bil 60 cm.

Breidd 600 cm eru 600 cm á breidd útdregið þekur það mest 200 cm og til hliðar þekur það um það bil 60-65 cm.

Algengar spurningar um breidd á gardínum?

Getur maður sett saman mismunandi breiddir við sama gluggan?

Já auðvitað!

Það er mjög eðlilegt að púsla saman breiddum til að láta gardínur passa saman og flæða rétt. Eða ef það er minni vegg partur öðru megin þá er það mun náttúrulegra að mixa saman breiddum.

Ég er með glugga sem er 300 en svæðið sem ég vil að gardínan þekur er 330. Hvaða stærð hentar? Það er alltaf gott að skoða hvort að það sé til dæmis svala hurð eða hurð út í garð. Gott er að skoða rýmið vel og hvernig þú gengur um það. Stundum er betra ef mikill umgangur er um svæðið að taka einn væng sem þú getur fært í burtu þegar umgangur er mikill eða verið er til dæmis að grilla. En sumir vilja að hægt sé að draga jafnt frá og þá er betra að taka tvo vængi. Hér væri möguleiki að taka til dæmis saman 2x 500 cm vængi (hver þekur 165cm) eða 1x 600 cm og 1x 300 cm (600cm þekur 200 cm og 300cm þekur 100cm) en þá þekja vængirnir aðeins gluggann þegar dregið er fyrir. Ef viðskiptavinir eru óviss þá er alltaf hægt að koma til okkar í Askalind 4 eða senda tölvupóst á kararugs@gmail.com og fá ráðgjöf.

Gardínur - Svona hengir þú upp

Hér eru okkar bestu tips um það hvernig er best að hengja upp gardínurnar.

Við viljum að það sé eins einfalt og þæginlegt þegar keyptar eru sérsaumaðar gardínur frá okkur. Við
höfum því gert ferlið eins auðvelt og hægt er og þegar gardínurnar koma til þín þá tekur þú þær
einfaldlega upp og hengir upp á gardínu brautina. Þú byrjar frá endanum á gardínubrautinni og setur fyrsta krókin inn í brautina og svo raðar þú þeim hver á eftir öðrum þar til öll gardínan er komin upp.
Til þess að gardínan sé sem fallegust er gott ráð að gufa gardínurnar og þá sérstaklega efst við
brautina þar sem að það geta komið brot í svegjurnar (wave borðan) þegar gardínan er brotin saman eftir saum og í
flutningi. Gufa svo niður frá braut að gólfi þar til gardínan er slétt og fín. Síðasta tips er svo að spreyja lín vatni „linne vatten“ á gardínurnar þínar sem gefur gardínunum góða og
nýþvegna lykt og tilfinningu.

Gott er að hafa í huga að það getur tekið upp undir tvær vikur fyrir gardínur að setjast alveg þegar þær hafa verið hengdar upp.