Endurgreiðslustefna

Skilareglur

 

Samkvæmt lögum nr. 46/2000 um húsagöngu og fjarsölusamninga hefur viðskiptavinur heimild til að skila vöru innan 14 daga og fá endurgreitt að því gefnu að varan sé í upprunalegum umbúðum ónotuð og órofið innsigli.

Fresturinn byrjar að líða þegar varan er afhent neytanda. Kvittun fyrir vörukaupunum þarf að fylgja með frá neytanda. Kostnaður við að skila vörunni, s.s. sendingarkostnaður, greiðist af neytanda. Neytandi er sá sem skráður er sem slíkur á reikningi. Hafa þarf samband við Kara Rugs í gegnum tölvupóst kararugs@gmail.com ef skila á vöru.

Neytandinn þarf að tilkynna ákvörðun sína um að hætta við kaup til Kara Rugs með sannanlegum hætti og áður en fresturinn til að falla frá kaupum rennur út. Það er neytandans að sanna að hann hafi tilkynnt Kara Rugs að hann vilji hætta við kaupin og því er best að gera það með skriflegum hætti í gegnum tölvupóst kararugs@gmail.com.

Skilaréttur gildir ekki um vöru sem sérsniðin er að neytanda, t.d. sérpantaðar stærðir eða tilboðs eða útsöluvöru.
Gardínur eru sérpöntunarvara og öll mál á ábyrgð kaupanda og ekki er hægt að skila né skipta sérpöntunar vöru. 
Eins ef veittur ef afsláttur af vöru vegna þess að um sýnis eintak sé að ræða eða galla.

 Galli:

Ef neytandi kaupir gallaða(r) vöru(r) í vefverslun Kara Rugs er boðið upp á viðgerð, nýja(r) vöru(r), afslátt eða endurgreiðslu kaupverðs. Það fer eftir atvikum og eðli gallans hvaða leið er valin hverju sinni. Um rétt neytanda, þ.e.a.s. einstaklingar sem versla í vefverslun Kara Rugs, eigi í þágu atvinnurekstrar, vegna galla vísast til laga um neytendakaup. Varðandi rétt fyrirtækja og einstaklinga sem versla í vefverslun Kara Rugs í þágu atvinnurekstrar vísast til laga um lausafjárkaup.