Skilmálar

Almennir skilmálar

Neytendur (þ.e.a.s. einstaklingar sem versla í vefverslun Kara Rugs) eru hvattir til þess að lesa skilmála þessa vandlega áður en þeir versla í vefverslun Kara Rugs, www.kararugs.is. Um notkun vefsíðu og vefverslunar Kara Rugs gilda skilmálar þessir. Með því að nota vefsíðu og vefverslun Kara Rugs samþykkir og viðurkennir neytandi að hann hafi kynnt sér, skilið og samþykkt, án fyrirvara, skilmála þessa, eins og þeir eru á hverjum tíma.

 

Ánægja viðskiptavina:

Það skiptir okkur miklu máli að viðskiptavinir okkar séu ánægðir. Ef það er eitthvað sem neytndur eru óánægðir með ekki hika við að hafa samband við okkur. Við munum gera allt sem í okkar valdi stendur til þess að leysa vandamálið eins fljótt og hægt er. Við viljum veita  viðskiptavinum okkar  framúrskarandi þjónustu og persónuelga þjónustu.

Kara Rugs, kt. 680794-2199, er staðsett að Askalind 4.

Kara Rugs áskilur sér rétt til að breyta reglum og skilmálum þessum án fyrirvara.

Verð

Öll verð á síðunni eru birt með fyrirvara um prentvillur.
Kara Rugs áskilur sér rétt til að hætta við pantanir, t.d. vegna rangra verðupplýsinga og einnig að breyta verðum eða hætta að bjóða upp á vörutegundir fyrirvaralaust. Þetta á einnig við ef um villur í reiknireglum vefverslunar er að ræða.
 

Nákvæmni upplýsinga

Reynt er eftir bestu getu að hafa réttar upplýsingar og vörumyndir í vefverslun. Upp geta komið tilvik þar sem um minniháttar litamun getur verið að ræða. Að öðru leyti eru upplýsingar birtar með fyrirvara um innsláttarvillur eða minniháttar uppfærslutafir.

 

Greiðsluleiðir

Hægt er að inna greiðslu af hendi í vefverslun með greiðslukorti eða Netgíró Kara Rugs er eigandi vörunnar þar til andvirði hennar er að fullu greitt.

Netgíró býður upp á kortalaus viðskipti á netinu. Til að greiða með Netgíró þarftu að vera með virkan aðgang, hægt er að nýskrá sig á vefsíði Netgíró. Þegar þú greiðir með Netgíró þarftu aðeins að slá inn kennitölu og lykilorð og þá er pöntunin frágengin. Reikningur vegna kaupanna kemur í heimabankann með gjalddaga eftir 14 daga og er hann vaxtalaus. Einnig býður Netgíró upp á raðgreiðslur vegna vörukaupa og er mögulegt að dreifa því á 2-12 mánuði (fer eftir upphæð kaupanna). Lágmarkskaup fyrir raðgreiðslur er 15.000 kr.