Sendingarskilmálar

Heimsending og ferill pantana

Þegar neytandi verslar í vefverslun Kara Rugs er hægt að velja á milli þess að sækja í verslun á miðvikudögum eða fimmtudögum milli kl 12-17 eða fá pöntunina senda.
 

Afhendingartími er að jafnaði 2-5 virkir dagar eftir að pöntun berst og greiðsla hefur átt sér stað. Varan er send beint heim til kaupanda á höfuðborgarsvæðinu með TVG Xpress, viðkomandi fær tilkynningu áður en sendingin kemur. 

Afhendingartími á sérsaumuðum gardínum eru 6-8 vikur að jafnaði. 

Sendingartími er þó mismunandi eftir því hvar neytandi býr, valinni sendingarleið ásamt því að hátíðabundið álag getur haft áhrif á þennan tíma. 

Heimsending er einungis í boði innanlands.